Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2961
Félagsfærni of feitra barna hefur ekki verið rannsökuð mikið en þær rannsóknir sem
hafa verið gerðar sýna mismunandi niðurstöður. Hér var athuguð félagsfærni hjá of
feitum börnum í fjölskyldumiðaðri meðferð sem stóð yfir í 18 vikur á vegum
Heilsuskólans. Þátttakendur voru 84 of feit börn á aldrinum sjö til 13 ára. Meðalaldurinn
var 10,6 ár og hlutfall kynja var, 38 stúlkur og 46 drengir. Í athuguninni var notaður
listinn Social Skills Rating System (SSRS) sem mælir félagsfærni en skoðar einnig
hegðunarvandamál og námsárangur.
Rannsóknartilgátur voru þrjár. 1. Of feit börn eru með slaka félagsfærni. 2. Börn
bæta félagsfærni sína í fjölskyldumiðaðri meðferð við offitu. 3. Fylgni er á milli
félagsfærni og bæði námsárangurs og hegðunarvanda. Niðurstöður rannóknarinnar
benda til þess að of feit börn búi að meðaltali ekki yfir slakri félagsfærni. Kennararnir
töldu þó fleiri drengi en stúlkur vera með verri félagsfærni á meðan foreldrar og börn
töldu fleiri stúlkur en drengi vera með slæma félagsfærni. Ekki kom fram marktækur
munur á félagsfærni milli aldursflokkanna, sjö til tíu ára og 11-13 ára. Félagsfærni
barnanna varð betri eftir meðferð við offitu. Í meðferðinni hafði líkamsþyngdarstuðullinn
lækkað um 7,1%. Jákvæð fylgni kom fram milli félagsfærni og
námsárangurs. Neikvæð fylgni var á milli félagsfærni og hegðunarvanda og einnig milli
hegðunarvanda og námsárangurs.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hrönn Smáradóttir_fixed.pdf | 460.62 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
Útdráttur_fixed.pdf | 52.19 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna |