is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2961

Titill: 
  • Félagsfærni í meðferð of feitra barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Félagsfærni of feitra barna hefur ekki verið rannsökuð mikið en þær rannsóknir sem
    hafa verið gerðar sýna mismunandi niðurstöður. Hér var athuguð félagsfærni hjá of
    feitum börnum í fjölskyldumiðaðri meðferð sem stóð yfir í 18 vikur á vegum
    Heilsuskólans. Þátttakendur voru 84 of feit börn á aldrinum sjö til 13 ára. Meðalaldurinn
    var 10,6 ár og hlutfall kynja var, 38 stúlkur og 46 drengir. Í athuguninni var notaður
    listinn Social Skills Rating System (SSRS) sem mælir félagsfærni en skoðar einnig
    hegðunarvandamál og námsárangur.
    Rannsóknartilgátur voru þrjár. 1. Of feit börn eru með slaka félagsfærni. 2. Börn
    bæta félagsfærni sína í fjölskyldumiðaðri meðferð við offitu. 3. Fylgni er á milli
    félagsfærni og bæði námsárangurs og hegðunarvanda. Niðurstöður rannóknarinnar
    benda til þess að of feit börn búi að meðaltali ekki yfir slakri félagsfærni. Kennararnir
    töldu þó fleiri drengi en stúlkur vera með verri félagsfærni á meðan foreldrar og börn
    töldu fleiri stúlkur en drengi vera með slæma félagsfærni. Ekki kom fram marktækur
    munur á félagsfærni milli aldursflokkanna, sjö til tíu ára og 11-13 ára. Félagsfærni
    barnanna varð betri eftir meðferð við offitu. Í meðferðinni hafði líkamsþyngdarstuðullinn
    lækkað um 7,1%. Jákvæð fylgni kom fram milli félagsfærni og
    námsárangurs. Neikvæð fylgni var á milli félagsfærni og hegðunarvanda og einnig milli
    hegðunarvanda og námsárangurs.

Samþykkt: 
  • 3.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2961


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hrönn Smáradóttir_fixed.pdf460.62 kBLokaðurHeildartextiPDF
Útdráttur_fixed.pdf52.19 kBOpinnÚtdrátturPDFSkoða/Opna