is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2963

Titill: 
  • Eve Online: Leikir, sköpun og samfélög
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um samfélag spilara í tölvuleiknum Eve Online og hvernig þeir taka þátt í að skapa þennan ímyndaða heim sinn. Fjallað er um hvort og hvernig fjölþátttökutölvuleikir eins og Eve Online passa við eldri kenningar leikjafræðinga. Einnig var spurt hvort slíkir tölvuleikir geti yfirhöfuð talist rannsóknarefni þjóðfræðinga. Rannsóknin fór fyrst og fremst fram með viðtölum við spilara og starfsmenn töluvleikjafyrirtækisins CCP. Þó var einnig framkvæmd vettvangsathugun og tjáningar spilara á þar til gerðum spjallborðum voru skoðaðar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að fjölþátttökutölvuleikir séu verðugt rannsóknarefni fyrir þjóðfræðinga. Einnig að kenningar flestra leikjafræðinga geti passað við þessa nýju tegund leikja þó umgjörð þeirra sé töluvert öðruvísi en eldri leikjategunda. Um leið kom í ljós að spilarar Eve Online taka mikinn þátt í að móta leikjaheim sinn með því að mynda hópa, búa til sögur í ýmsum myndum og síðast en ekki síst með því að skapa þær persónur sem byggja heiminn.

Samþykkt: 
  • 3.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2963


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meginmal_fixed.pdf2.69 MBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
titilsidur_fixed.pdf132.73 kBOpinnTitilsíðurPDFSkoða/Opna
heimildaskra_fixed.pdf131.97 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
efnisyfirlit_fixed.pdf75.07 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna