is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/296

Titill: 
  • Að upplifa náttúru og umhverfi með yngstu börnum leikskólans
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er leitast við að kanna á hvaða hátt við mætum námi og starfi yngstu barnanna þannig að það verði áhrifaríkt og ánægjulegt fyrir þau. Einnig hvernig við leiðbeinum yngstu börnum leikskóla að upplifa náttúru og umhverfi.
    Fjallað er um hvernig vinna má að upplifun á náttúru og umhverfi með tveggja til þriggja ára börnum. Ung börn hafa mikla hreyfiþörf og því hentar þeim vel að vera úti þar sem þau geta hreyft sig óhindrað. Ísland býr yfir stórbrotnu náttúruumhverfi og meðal annars er þar hreint loft sem gerir útiveru barna heilnæma. Með ágangi á náttúrunni af mannavöldum getur hún spillst og umhverfið því orðið óheilnæmt. Þess vegna er mikilvægt að kenna börnum æskilega hegðun við umhverfi sitt. Til þess að sjá hvaða aðferð er áhrifaríkust í kennslu barnanna verður greint frá ýmsu í kenningum fjögurra fræðimanna á sviði þroska og þróunar í uppvexti barna. Fram kemur að mikil þróun hefur orðið í umhverfismálum sem lýsir sér í auknum áhuga fyrir að tengja þau inn í starf leikskóla. Fjallað verður um fimm leikskóla sem byggja starfsemi sína á náttúru og umhverfi. Aðferðir þeirra og hugmyndir eru skoðaðar og einnig eru lögð drög að leikskólalóð sem býður börnum upp á margbrotna náttúruupplifun. Greint verður frá framkvæmd verkefna með tveggja ára börnum sem fléttast inn í námssvið Aðalnámskrár leikskóla. Einnig koma hugmyndir að verkefnum sem vinna má með yngstu börnum leikskólans. Uppeldisfræðilegar skráningar eru settar fram til þess að gefa sýn á ferli sem á sér stað þegar ung börn eru að upplifa umhverfi og náttúru. Eftir að hafa unnið verkefnin með börnunum teljum við starf með tveggja ára börnum í leikskólanum merkilegt og árangur sýnilegan. Því ætti umfjöllun um starf þeirra að vera meira áberandi í skólanámskrám leikskóla. Verkefni með náttúru og umhverfi er góð námsleið fyrir tveggja til þriggja ára börn því þar finnast mörg tækifæri til skynjunar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/296


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
upplifanatturu.pdf778.03 kBTakmarkaðurAð upplifa náttúru og umhverfi með yngstu börnum leikskólans - heildPDF
upplifanatturu_e.pdf83.98 kBOpinnAð upplifa náttúru og umhverfi með yngstu börnum leikskólans - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
upplifanatturu_h.pdf121.77 kBOpinnAð upplifa náttúru og umhverfi með yngstu börnum leikskólans - heimildaskráPDFSkoða/Opna
upplifanatturu_u.pdf114.34 kBOpinnAð upplifa náttúru og umhverfi með yngstu börnum leikskólans - útdrátturPDFSkoða/Opna