is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2977

Titill: 
  • Áhættugreining ökutækjatrygginga : stefnumótun í ljósi nýrra greiningamöguleika
Titill: 
  • Risk analysis in motor insurance : stragety formulation regarding new methods in risk analysis
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um áhættugreiningu ökutækjatrygginga með áherslu á kaskótryggingar. Áhættugreiningin byggir á rannsóknum á vátryggingastofni ökutækjatrygginga Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) en félagið er með um 24% markaðshlutdeild á íslenska ökutækjatryggingamarkaðinum og endurspeglar því stofninn vel íslenska markaðsaðstæður.
    Afkoma kaskótrygginga hefur ekki verið viðunandi hjá TM undanfarin ár og því kappsmál að leita leiða til að laga afkomu vátryggingagreinarinnar. Nýir greiningamöguleikar hafa skapast hjá félaginu sem hafa opnað fyrir ýtarlegri greiningar á áhættum og þeim breytum sem áhrif hafa á afkomu ökutækjatrygginga.
    Unnið er útfrá eftirfarandi rannsóknarspurningu:
    Geta nýir greiningarmöguleikar á afkomu ökutækjatrygginga leitt til nákvæmari og sanngjarnari iðgjaldaákvarðana og nýtast þessar nýju aðferðir í mótun nýrrar stefnumótunar ökutækjatrygginga hjá TM sem leitt getur til aukins vaxtar með markvissari markaðsfærslu ökutækjatrygginga.
    Í rannsóknarvinnunni var leitast við að greina nýjar áhættubreytur sem ekki hafa verið skoðaðir áður hjá félaginu og jafnframt kannað hvort núverandi áhættugreining sé rétt og í samræmi við fyrri hugmyndir og viðhorf.
    Beitt var verkfærum markaðs- og stefnumótunarkenninga til að greina TM sem og þann markað sem það starfar á og niðurstöður rannsókna notaðar til að koma með tillögur að stefnumótun fyrir ökutækjatryggingar til framtíðar.
    Helstu niðurstöður eru að tækifæri eru í aðgreiningu á ökutækjamarkaði með nýrri nálgun í áhættumati ökutækjatrygginga og um leið að auka arðsemi vátryggingagreinarinnar

Samþykkt: 
  • 4.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2977


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fylgiskjöl.pdf26.6 kBOpinnFylgiskjPDFSkoða/Opna
heimilda_Einar_fixed.pdf83.74 kBOpinnHeimildaskraPDFSkoða/Opna
Meginmal_einar_fixed.pdf583.2 kBOpinnMeginmalPDFSkoða/Opna
forsíða_Einar.pdf68.39 kBOpinnForsidaPDFSkoða/Opna