Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/297
Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er leitast við að svara rannsóknarspurningunni; Hvernig þróast læsi í leikskóla? Á hvern hátt er unnið með þessa þætti hjá elstu börnum í leikskólum Reykjanesbæjar? Við leituðum svara við því á hvern hátt bernskulæsi þróast hjá börnum á leikskólaaldri og skoðum hvort það sé misjafnt eftir leikskólum hvernig unnið er með þessa þætti í Reykjanesbæ.
Þar sem mál og lestur eru tengd fjöllum við um þrjár meginkenningar í máltöku, atferliskenningu, erfðakenningu og vitsmunakenningu og síðan nýrri tíma kenningar og rannsóknir er lúta að starfsemi heilans.
Þá er greint frá ýmsum þáttum er varða forsendu læsis en fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar í því skyni að rannsaka hvaða þættir málþroskans segja mest fyrir um árangur í lestrarnámi.
Til að kanna á hvern hátt er unnið með læsi hjá elstu börnum í leikskólum Reykjanesbæjar var tekið viðtal við hópstjóra elstubarna í þremur leikskólum, sem við nefnum A, B og C, leikskólarnir heimsóttir og námskrár textagreindar.
Helstu niðurstöður könnunar okkar eru að ólíkar leiðir eru farnar í þessum málum.
Allir leikskólarnir leggja áherslu á að styrkja og undirbúa börnin undir næsta skólastig með því að styrkja sjálfsmynd, sjálfstraust og sjálfstæð vinnubrögð barnanna, leiðirnar sem þeir velja eru nátengdar þeirri hugmyndafræði og stefnum sem leikskólarnir annars vinna eftir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
olikarleidir.pdf | 615.33 kB | Takmarkaður | Ólíkar leiðir að sama markmiði - heild | ||
olikarleidir_e.pdf | 108.52 kB | Opinn | Ólíkar leiðir að sama markmiði - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
olikarleidir_h.pdf | 145.54 kB | Opinn | Ólíkar leiðir að sama markmiði - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
olikarleidir_u.pdf | 91.94 kB | Opinn | Ólíkar leiðir að sama markmiði - útdráttur | Skoða/Opna |