is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3009

Titill: 
  • Hitastigsaðlögun aqualysins I, subtilisín-líks serín próteinasa úr hitakæru bakteríunni Thermus aquaticus.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Byggingarlegar forsendur hitastigsaðlögunar próteina jaðarlífvera hafa verið mikið rannsakaðar undanfarna áratugi. Þetta verkefni er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem er gerður samanburður á eiginleikum og byggingu samstofna ensíma, sem til heyra subtilisin-líkra seríne próteinasa nánar til tekið subtilösum. Beitt er markvissum stökkbreytingum til að svara spurningum um hitastigsaðlögum ensíma. Í þessu verkefni var framkvæmd þrefalda stökkbreytingin H119A/R120S/R121G á hitakæra ensíminu aqualysini I. Var þessi stökkbreyting valin með tilliti til samsvarandi amínósýruraðar í samstofna ensími úr kuldakærri Vibrio-tegund (VPR). Til að meta áhrif stökkbreytingarinar var stökkbreytta ensímið borið saman við villigerð þess, með mælingum á hraðafræði og stöðugleika próteinsins. Einnig var notast við flúrljómunarbælingu með akrýlamíði til að meta hvort að einhver breyting hefði verið á heildarsveigjanleika stökkbrigðisins. Niðurstöðurnar gefa til kynna að ekki er marktækur munur á stökkbreytta ensíminu og villigerðinni.

Samþykkt: 
  • 9.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3009


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pd_fixed.pdf933.89 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna