Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3028
Miklar framfarir hafa verið á undanförnum árum á sviði vélmenna og annara aðlagandi
tækja. Framtíðartakmarkið er að vélmenni lærir að takast á við verkefni í raunumhverfi.
Markmið þessarar ritgerðar er að búa til raunverulegt þrívíddar umhverfi með því að nota
opin hugbúnað. Frá sjónarmiði vélræns lærdóms er markmiðið að læra að keyra í hvaða
umhverfi sem er, með því að stjóra hröðun og stefnu. Það er mikil áhuga á því að geta
stjórnað hegðun bíls bæði í sýndarveruleikaumhverfi og raunumhverfi. Þessar
sýndarveruleikalausnir eru oft einfaldar og vantar þar oft hluti eins og núningur. Með þessu
verkefni er markmiðið að gera umhverfi fyrir vélrænan lærdóm sem er raunverulegra en
þau hafa verið hingað til og þar af leiðandi meira krefjandi fyrir reiknigreindina. Okkar
lausn notar vélræna lærdómassafnið Pyro og eðlisfræðisafnið PhysX sem gefur nokkuð
raunverulegt þrívíddarumhverfi til að prófa og læra reiknigreind. Forritið gerir notendum
kleift að læra hegðun í flóknu og margbreytilegu umhverfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Framework_fixed.pdf | 2.87 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |