is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3038

Titill: 
  • Burðarvirki knatthalla á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er safnað saman upplýsingum um sjö knatthallir sem risið hafa á Íslandi á undanförnum árum. Burðarvirki þessara halla eru borin saman með áherslu á aðalburðarbitana í þaki hallanna. Þakvirki knatthallar Vals, sem verður að öllum líkindum áttunda knatthöllin, er hönnuð eftir þremur mismunandi leiðum.
    Fyrsta lausnin samanstendur af átta u.þ.b. 10m löngum beinum plötubitum sem eru settir saman þannig að þeir myndi stálboga sem líkir eftir bogaformi uppdrátta af knatthöll Vals. Plötubogarnir eru reiknaðir innspenntir við undirstöður og tengingarnar milli plötubitanna yfirfæra beygjuvægi.
    Önnur lausnin er grindarbogi sem samanstendur af átta grindarbitum sem er raðað þannig að þeir fylgja sama bogaformi og plötubogalausnin. Um er að ræða svokallaða Warren grindarbita en sú tegund grindarbita hefur verið notuð við fjórar af þeim fimm knatthöllum landsins þar sem grindarbogar brúa haflengdina. Um er að ræða tveggja liða grindarboga sem er samansettur af grindarbitum með liðtengingu við undirstöður.
    Þriðja lausnin er einnig grindarbogalausn sem er að öllu leyti eins og fyrri grindarbogalausnin nema að í þessari lausn er liðtenging mynduð yfir miðju hafi þannig að um þriggja liða grindarboga er að ræða.
    Niðurstaða verkefnisins er sú að fyrir knatthöll Vals er plötubogalausn hagkvæmasta lausnin. Bogaform knatthallanna veldur miklum áslægum krafti í þversniðum þakvirkisins en minnkar beygjuvægisáraunina. Snjóálagið er ráðandi álag fyrir plötubogalausnina. Snjóálagið fellir hausbita grindarbogalausnanna en vindálagið fellir fótbitana og því ekki hægt að segja að annaðhvort álagið sé ráðandi í því tilfelli. Eiginálag er lítið miðað við vind- og snjóálag á knatthallirnar.

Samþykkt: 
  • 12.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3038


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistaraverkefni_SG_fixed.pdf3.27 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna