is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3048

Titill: 
  • Samanburður á vöðvavirkni við spretthlaup hjá knattspyrnumönnum sem tognað hafa í aftanlærisvöðvum á 12 mánaða tímabili fyrir rannsókn og knattspyrnumönnum sem ekki hafa sögu um slíkar tognanir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á síðustu 10-15 árum hafa aftanlæristognanir verið algengustu meiðslin í knattspyrnu karla. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna það hvort munur sé á tímasetningu hámarksvöðvasamdráttar aftanlærisvöðva miðað við hælstuð í hámarksspretti og hvort vöðvavinna aftanlærisvöðva breytist við þreytu. Þátttakendur voru 20 knattspyrnumenn í úrvals- og 1.deild karla. Í upphafi fengu þeir spurningalista þar sem spurt var um aldur, leikjafjölda og meiðslasögu. Þátttakendur í rannsóknarhópi höfðu sögu um aftanlæristognun í öðru læri á tímabilinu janúar-september 2008. Leikmenn í viðmiðunarhópi höfðu ekki sögu um aftanlæristognanir sl. 2 ár fyrir rannsókn. Þátttakendur hlupu 8x30 m spretti á hámarkshraða. Vöðvarafrit og háhraðamyndavél voru notuð til að safna gögnum til greiningar í tveimur sprettum í óþreyttu ástandi og tveimur í þreyttu ástandi. Tími var mældur í öllum sprettum. Niðurstöður voru ekki marktækar. Niðurstöður sýndu hvorki marktækar breytingar á milli rannsóknarhóps og viðmiðunarhóps né á milli fóta einstaklinga í rannsóknarhópi.

Samþykkt: 
  • 15.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3048


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_EHP_fixed[1].pdf1.26 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna