Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/304
Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er leitast við að svara rannsóknarspurningunum Hvernig er hægt að skipuleggja starf á yngstu deildum leikskóla, með tilliti til þarfa barna fyrir nærveru og þarfa þeirra til að takast á við hið ókunnuga í gegnum leik?
Samkvæmt rannsóknum sem fjallað er um skiptir miklu að barnið búi við tilfinningalegt öryggi í æsku. Því er einkar mikilvægt að leikskólinn sé vel í stakk búinn að taka á móti börnunum þegar þau byrja á unga aldri og sýnt er fram á mikilvægi þess að einn leikskólakennari, lykilpersóna, beri ábyrgð á aðlögunarferlinu. Einnig komið inn á þætti sem snerta góða umönnun í öllu leikskólastarfinu, grein gerð fyrir mikilvægi þess að mynda náin tengsl og traust milli barnanna og leikskólakennarans. Þá er sýnt fram á að umönnun þarf að vera til staðar í öllum þáttum dagskipulagsins.
Börn læra í gegnum leik. Því ætti leikurinn að vera fjölbreytilegur því í gegnum leikinn eru börn oft að vinna úr reynslu sinni. Könnunarleikurinn er sérstaklega skoðaður og honum lýst en þessi leikaðferð er nýbreytni á Íslandi. Fjallað er um þróunarverkefni um könnunarleikinn sem sjö leikskólar í Reykjavík tóku þátt í. Gerð er grein fyrir viðhorfskönnun sem ég lagði fyrir í fjórum af þeim leikskólum sem tóku þátt í þróunarverkefninu og fjallað um niðurstöður hennar. Helstu niðurstöður könnunarinnar eru þær að leikskólakennararnir töldu könnunarleikinn henta vel börnum á aldrinum eins til þriggja ára.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
litlumanneskjurnar.pdf | 307.55 kB | Opinn | Litlu manneskjurnar í leikskólanum - heild | Skoða/Opna |