is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3050

Titill: 
  • Stöðubundin eterlípíð merkt með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum í einni endastöðunni
Titill: 
  • Structured ether lipids labelled with omega-3 polyunsaturated fatty acids in one of the terminal positions
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefnið fólst í fjögurra skrefa efnasmíð á handhverfuhreinum eterlípíðum. Eterlípíðin sem smíðuð voru höfðu ómega-3 fjölómettaða fitusýru í endastöðu og miðlungs langa fitusýru í miðstöðu. Rannsóknir hafa sýnt að eterlípíð og ómega-3 fitusýrur hafi jákvæð áhrif á heilsu manna. Það þótti því áhugavert að geta smíðað þessi efni.
    Fyrst voru notuð þekkt hvörf til að útbúa eterlípíð með náttúrulegri skipan, þar sem alkýlkeðja var tengd inn á aðra endastöðu handhverfuhreins sólketals og díólið afverndað. Næst var ómega-3 fitusýra innleidd í fríu endastöðuna með hjálp lípasans Candida antarctica. Loks var miðlungs löng fitusýra innleidd í miðstöðu í tengihvarfi. Nýjung verkefnisins fólst í þeirri staðvendni sem birtist í síðustu tveimur skrefunum. Úr þessum skrefum fengust góðar heimtur með tilætlaðri staðvendni. Myndefnin voru sannkennd með NMR og IR litrófsmælingum, nákvæmum hágæða massamælingum ásamt því að eðlisljósvirkni efnanna var mæld.

Samþykkt: 
  • 15.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3050


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd_fixed.pdf3.03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna