is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/305

Titill: 
  • Feimni : er hægt að hjálpa börnum að yfirstíga þá hindrun sem feimin er og þá hvernig?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni hennar er feimni og rannsóknarspurningin er: Er hægt að hjálpa börnum að sigrast á þeirri hindrun sem feimnin er og þá hvernig? Feimni er vel þekkt og svo flókið fyrirbæri að engin ein skilgreining er fullnægjandi því hún er á ýmsa lund eftir því hver á í hlut.
    Í fyrsta hluta ritgerðarinnar fjalla höfundar um ýmsar rannsóknir sem gerðar hafa verið í tengslum við feimni. Þær hafa sýnt að orsakir feimni liggja í samspili erfða og umhverfis, feimnin er afar algeng og getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það er þó ljóst að ýmislegt er til ráða.
    Í öðrum hluta ritgerðarinnar er umfjöllun um könnun sem höfundar ritgerðarinnar gerðu til að kanna hversu margir leikskólakennarar þekkja til og hafa unnið með feimin börn í leikskólum. Reynt er að komast að því hvort þeir hafi unnið eftir einhverri ákveðinni áætlun, hvort hún hafi þá borið árangur og hvort þeir telji þörf á að hafa slíka áætlun. Könnunin fór fram í öllum leikskólum Akureyrar og tóku 57 leikskólakennarar þátt. Helstu niðurstöður eru að meirihluti leikskólakennara telja að feimin börn séu hluti af barnahópnum, afar fáir leikskólar eiga áætlanir til að vinna eftir með feimin börn og flestir þátttakenda telja að slíkar áætlanir ættu að vera til. Einnig greina svarendur frá því að þar sem áætlanir voru til báru þær árangur. Í ljósi niðurstaðna þyrftu fleiri leikskólar að eiga áætlanir fyrir feimin börn.
    Í þriðja hluta ritgerðarinnar fjalla höfundar um áætlun sem þeir hafa gert til að hjálpa leikskólakennurum að reyna að fyrirbyggja feimni og takast á við hana hjá feimnum börnum. Áætlunin er aðeins grunnur sem leikskólakennarar þurfa að byggja á eftir þörfum. Þessa áætlun byggja höfundar á þeim kennismiðum og hugsuðum sem ritgerðin byggir á ásamt reynslu og þekkingu.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/305


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
feimni.pdf872.24 kBOpinnFeimni - heildPDFSkoða/Opna