is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3060

Titill: 
  • Hátækni sýndarsjúklingar sem kennslutæki í heilbrigðisvísindum: Gagn eða bara gaman?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Hátækni hermikennsla styðst við tölvustýrða sýndarsjúklinga í sviðsettum klínískum aðstæðum og er í auknum mæli notuð við kennslu verðandi heilbrigðisstarfsfólks. Hermikennsla í heilbrigðisvísindum er ekki ný af nálinni en hátækni sýndarsjúklingar hafa verið í stöðugri þróun síðastliðin 40 ár. Aukinn bráðleiki sjúklinga, flóknari meðferðarúrræði, kostnaður við þjálfun nemenda, ásamt meiri áherslum á öryggi sjúklinga, hafa stuðlað að aukinni notkun hátækni sýndarsjúklinga. Tilgangur verkefnisins var að kanna stöðu hátækni hermikennslu við menntun nemenda í heilbrigðisvísindum. Skoðað var hvort slík kennsluaðferð sé nemendum gagnleg og hvort hún hafi áhrif á klíníska færni þeirra. Heimildaöflun fór fram á rafrænum gagnasöfnum PubMed, Medline og Cinahl. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að hátækni hermikennsla er gagnleg viðbót við hefðbundna kennslu nemenda í heilbrigðisvísindum. Rannsóknir benda til þess að hátækni hermikennsla stuðli að þróun klínískrar dómgreindar og hafi jákvæð áhrif á gagnrýna hugsun nemenda. Þessi kennsluaðferð aðstoðar nemendur við að öðlast skilning, tæknilega færni og setja þekkingu í klínískt samhengi. Ánægja nemenda með hátækni hermikennslu er mikil og telja nemendur hana hafa jákvæð áhrif á klínsíka færni. Fáar rannsóknir eru til um áhrif hátækni hermikennslu í heilbrigðisvísindum og er frekari rannsókna þörf til að kanna gildi þessarar kennsluaðferðar.

Samþykkt: 
  • 19.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3060


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaverkefni_fixed.pdf270.39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna