Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3068
Á undanförnum árum hefur umræðan um slakt námsgengi nemenda af erlendum uppruna í íslenskum framhaldsskólum verið áberandi. Rannsóknarniðurstöður, bæði innlendar og erlendar, gefa tilefni til að ætla að námsgengi innflytjenda sé talsvert lakara en innfæddra. Rannsókninni er ætlað að varpa ljósi á stöðu mála hér á landi. Til þess að öðlast dýpri skilning á eðli þeirra vandamála sem erlendir nemendur standa frammi fyrir í íslensku skólakerfi var ákveðið að beita eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem reynsla nemendanna sjálfra var dregin fram. Þátttakendur í rannsókninni voru fjórar erlendar konur sem allar hafa reynslu af íslensku skólakerfi. Ónóg íslenskukunnátta er, eðli máls samkvæmt, sú hindrun sem helst mætir erlendum nemendum. Samt sem áður voru niðurstöður í þessari rannsókn þær að stuðningur foreldra við nám stúlknanna reyndist meginforsenda að góðu námsgengi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
a_fixed.pdf | 45.33 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
lakerfi_fixed.pdf | 623.16 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |