is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3068

Titill: 
  • Reynsla nemenda af erlendum uppruna af íslensku skólakerfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum hefur umræðan um slakt námsgengi nemenda af erlendum uppruna í íslenskum framhaldsskólum verið áberandi. Rannsóknarniðurstöður, bæði innlendar og erlendar, gefa tilefni til að ætla að námsgengi innflytjenda sé talsvert lakara en innfæddra. Rannsókninni er ætlað að varpa ljósi á stöðu mála hér á landi. Til þess að öðlast dýpri skilning á eðli þeirra vandamála sem erlendir nemendur standa frammi fyrir í íslensku skólakerfi var ákveðið að beita eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem reynsla nemendanna sjálfra var dregin fram. Þátttakendur í rannsókninni voru fjórar erlendar konur sem allar hafa reynslu af íslensku skólakerfi. Ónóg íslenskukunnátta er, eðli máls samkvæmt, sú hindrun sem helst mætir erlendum nemendum. Samt sem áður voru niðurstöður í þessari rannsókn þær að stuðningur foreldra við nám stúlknanna reyndist meginforsenda að góðu námsgengi.

Samþykkt: 
  • 22.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3068


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a_fixed.pdf45.33 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
lakerfi_fixed.pdf623.16 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna