is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/306

Titill: 
  • Er kynjamunur í teikningum barna?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er leitað svara við því hvort að munur sé á milli kynja í barnateikningum.
    Öllum er það ljóst að kynin eru líffræðilega ólík, en eru þau ólík á öðrum sviðum?
    Kenningar fræðimannanna W. Lambert Brittain, Viktors Lowenfeld og Rhodu Kellogg
    um myndsköpun ungra barna voru skoðaðar. Kynjamunur almennt var skoðaður og leitað
    fanga í greinum eftir Margréti Pálu Ólafsdóttur, Hafstein Karlsson og Stefaníu
    Traustadóttur. Undirbúningur fór fram í leikskólanum Stekkjarási og skriflegt leyfi var
    fengið frá forráðamönnum barnanna til að taka þátt í rannsókninni og fékkst 100%
    þátttaka frá forráðamönnum þeirra. Einnig var óskað eftir því við forráðamenn barnanna
    að fá að ræða við börnin um þeirra túlkun á myndefninu, nokkurs konar
    einstaklingsviðtal. Til að geta skoðað samskipti milli barnanna var notuð
    uppeldisfræðileg skráning. Til eru margar góðar aðferðir til þess t.d. að taka ljósmyndir,
    myndbandsupptökutæki, teikna og skrifa það niður sem börnin segja, vangaveltur
    leikskólakennaranna og viðbrögð. Var notast við myndbandsupptökutæki í þessar
    rannsókn. Mælitæki voru notuð, en það voru bækurnar, Dagur í lífi Skarpa eftir Birgi
    Svan Símonarson og Svona gera prinsessur eftir Per Gustavson. Niðurstaða var fengin úr
    rannsókninni og kom hún höfundi á óvart, sem vakti um leið upp mikilvægar og
    skemmtilegar spurningar sem vert er að gefa gaum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/306


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
erkynjamunur.pdf1.09 MBTakmarkaðurEr kynjamunur í teikningum barna? - heildPDF
erkynjamunur_e.pdf85.8 kBOpinnEr kynjamunur í teikningum barna? - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
erkynjamunur_h.pdf115.33 kBOpinnEr kynjamunur í teikningum barna? - heimildaskráPDFSkoða/Opna
erkynjamunur_u.pdf94.94 kBOpinnEr kynjamunur í teikningum barna? - útdrátturPDFSkoða/Opna