Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3103
Verkefnið fjallar um útvistun verkefna á sviði menningarmála í opinberri stjórnsýslu. Í fræðilegum hluta þess er fjallað um útvistun og staðsetningu hugtaksins í fræðunum. Tengsl útvistunar við hin viðfangsefni stjórnunar-, stefnumótunar- og samstarfsfræða eru skoðuð sem og helstu hvatar þess að ráðist er í útvistun verkefna. Rannsóknin byggist á hugmyndafræði leitandi rannsókna þar sem fjöldi viðtala er tekin við einstaklinga sem eru sérfróðir á ýmsum sviðum tengdum viðfangsefninu. Tilviksathugun er jafnframt unnin þar sem skoðað er hvaða rekstrarform er best til þess fallið að ná fram markmiðum sem sett eru með rekstri Menningarhúss á Akureyri.
Niðurstöður bentu eindregið til þess að rétt væri að útvista rekstur Menningarhúss á
Akureyri. Sú niðurstaða byggist m.a. á þeirri staðreynd að skilgreindir lykilþættir
árangurs í rekstri eru skilvirkni í stjórnsýslu, afnám pólitískra tengsla og skýrt umboð
stjórnenda en slíkt fellur ekki að því rekstrarumhverfi sem Akureyrarbær býður. Þessi
niðurstaða er í samræmi við fræðilega umfjöllun um kjarnahæfni, kjarnastarfsemi og
virðiskeðju í tengslum við útvistun. Nánari greining leiddi svo til þeirrar niðurstöðu að
rekstrinum yrði best fyrirkomið í umgjörð sjálfseignarstofnunar.
Mikill samhljómur var í niðurstöðum rannsóknarinnar en veikileiki hennar felst helst í því hversu einsleitur viðmælendahópurinn var og því hversu lítið liggur fyrir af greiningum og rannsóknum til samanburðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
IOS_Utvistun_fixed.pdf | 876.71 kB | Lokaður | Útvistun í opinberri stjórnsýslu - heild |