is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3171

Titill: 
  • Málþroski og ritmálsþroski : íslenskukennsla í leikskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Börn byrja snemma að sanka að sér vitneskju um orð, lestur og bækur. Bækur eru afskaplega mikilvægar fyrir leikskólabörn og málörvun þeirra. Það er mjög þýðingarmikið að börn kynnist bókum, sögum og ljóðum og læri að meta bókmenntir á unga aldri. Börn eru byrjuð að læra um lestur og skrift löngu áður en þau læra að lesa og skrifa. Það gera þau með því taka eftir því sem er að gerast í kringum þau, með því að umgangast ritmál og þegar að lesið er fyrir þau úr bókum. Lestrar og skriftarkunnátta er að birtast frá fæðingu að því tilskyldu að börnin alist upp í umhverfi þar sem lögð er áhersla ritmál. Ritmálsþroski barna einkennist af því að þau fara að leika sér með því að krota eða setja merki á blað. Þó að þau geti ekki skrifað þá vita þau hver tilgangur skriftar er löngu áður en þau læra að skrifa sjálf.
    Hlutverk kennara og fullorðinna í málþroska er mjög mikið. Góður leikskólakennari þarf að vera gæddur ákveðnum eiginleikum og hafa uppeldislega þekkingu til að nota þær kennsluaðferðir sem að henta börnunum best.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 3.7.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3171


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Málþroski og ritmálsþroski, íslenskukennslu í leikskóla.doc.pdf450.33 kBLokaður,,Titill verkefnis" - heildPDF
Efnisyfirlit.pdf6.27 kBOpinn,,Titill verkefnis" - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildir.pdf63.88 kBOpinn,,Titill verkefnis" - heimildirPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf61.98 kBOpinn,,Titill verkefnis" - útdrátturPDFSkoða/Opna