Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3257
Skýrsla þessi lýsir hefðbundnu verkferli á nýju íslensku handriti að skáldverki, frá því það berst bókaforlagi og þar til það er kynnt og auglýst. Tilgangurinn er að varpa ljósi á hlutverk ritstjórans, bæði þegar hann er yfirmaður vinnslu textans og þegar hann sinnir ráðgefandi hlutverki í kynningarmálum. Því er skýrslunni skipt í tvo meginhluta. Fyrri hlutinn fjallar um verkferli skáldverks og skýrir meðal annars handritalestur, efnislegan lestur, listrænar útfærslur, samskipti við höfund og gerð kápu og káputexta. Sá síðari tekur á allri kynningarstarfsemi, svo sem fréttatilkynningum, auglýsingum og auglýsingatextum, kynningum á netinu, viðtölum, uppákomum og fleira. Auk hlutanna tveggja er viðauki í lokin sem lýsir í fyrstu persónu frásögn starfsnámi undirritaðs hjá Forlaginu. Starfsnámið, ásamt skýrslunni, var lokahluti námsins í hagnýtri ritstjórn og útgáfu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
EHP_Forsida_fixed.pdf | 35.79 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
EHP_Titilsida_fixed.pdf | 13.43 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
EHP_Agrip_fixed.pdf | 10.53 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna | |
EHP_Efnisyfirlit_fixed.pdf | 12.64 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
EHP_Ritgerdin_fixed.pdf | 231.33 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |