is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3263

Titill: 
  • Frá hákarli til síldar. Atvinnu- og íbúaþróun í Árneshreppi á Ströndum 1850-1950
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð ætla ég að skoða þær samfélagsbreytingar sem urðu í Árneshreppi
    á tímabilinu 1850-1950, kanna þróun atvinnuskiptingar og íbúadreifingar og reyna að svara eftirfarandi spurningum. Hvaða áhrif höfðu breytingar í atvinnumálum
    þjóðarinnar á íbúaþróun og -dreifingu í Árneshreppi? Hversu varanleg áhrif höfðu
    umsvif síldaráranna á byggðaþróun í Árneshrepp? Hvers vegna varð engin frekari
    þéttbýlismyndun í hreppnum eftir að vísar að þéttbýli höfðu orðið til á minnst þremur
    stöðum?
    Í þessum tilgangi mun ég vinna úr upplýsingum um fólksfjölda og atvinnustöðu
    úr manntölum teknum á árunum 1850 til 1950, og úr tölum um fædda, látna, brottflutta
    og aðflutta úr kirkjubókum 1852-1942. Ég mun notast við ýmsar greinar úr héraðsritinu
    Strandapóstinum, auk bóka um sögu þessara staða má nefna bókina Hrundar borgir
    eftir Þorstein Mattíasson, Strandamenn Jóns Guðnasonar, greinar úr safnritinu Strandir
    2, og Strandamannabók Péturs Jónssonar frá Stökkum, og stuðningsrit þar sem það á
    við. Þar að auki mun ég notast við hreppsbækur Árneshrepps sem geymdar eru á
    Þjóðskjalasafni Íslands og á skrifstofu Árneshrepps. Einnig mun ég styðjast við
    heimildarmenn frá Árneshreppi sem þekkja til einstakra þátta í ritgerðinni.

Samþykkt: 
  • 27.1.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3263


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Thorsteinn_Hjaltason_fixed.pdf1.85 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna