Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3279
DNA lígasa er að finna í öllum lífverum sem þekktar eru, hlutverk þeirra er að líma saman
DNA þætti við eftirmyndun erfðaefnisins og DNA viðgerðir. Lígasar eru flokkaðir eftir því
hvaða fylgiþátt þeir nota en fylgiþátturinn er ýmist ATP eða NAD+ . Einungis raunbakteríur
notast við NAD+ sem fylgiþátt, heilkjörnungar og fornbakteríur notast við ATP. Í öllum
NAD+ háðum lígösum, sumum ATP háðum lígösum og ýmsum próteinum heilkjörnunga sem
taka þátt þátt í DNA viðgerðum og/eða stjórn á frumuhringnum, er að finna BRCT hneppi.
BRCT hneppið fannst fyrst í æxlisbæligeninu BRCA1 og dregur BRCT hneppið nafn sitt af
því. Hlutverk og bygging BRCT hneppisins í ATP háðum lígösum og ýmsum próteinum
heilkjörnunga hefur verið mikið rannsakað og er nokkuð vel skilgreint. Mjög lítið er hins
vegar vitað um BRCT hneppi NAD+ háðra lígasa og hlutverk þess. Markmið þessa verkefnis
var að reyna að finna og bera kennsl á hugsanleg prótein sem bindast BRCT hneppi lígasa A í
E. coli með því að nota ónæmisfellingu og 2D blue native/SDS-PAGE. Ekki tókst að finna
neitt prótein sem binst BRCT hneppi DNA lígasa A og er frekari rannsókna þörf til að greina með fullri vissu hvort slíkt prótein sé að finna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Marteinn_Thor_Snaebjornsson_fixed.pdf | 2.71 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |