Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3283
Markmið þessarar ritgerðar er að kanna viðhorf þeirra sem búa í hverfi 101 í
Reykjavík til erlendra ferðamanna. Í rannsókninni var stuðst við eigindlegar
rannsóknaraðferðir þar sem tekin voru 12 viðtöl 10 við einstaklinga, 1 við
verslunarstjóra í verslun á Laugaveginum og 1 við eiganda kaffihúss og verslunar á
Skólavörðuholtinu. Skoðaðar voru skilgreiningar fræðimanna á heimamanninum,
ferðamanninum og samskiptum þeirra á milli. Niðurstöður gefa til kynna að
heimamenn í hverfi 101 Reykjavík eru jákvæðir gagnvart ferðamönnum og samskipti
þeirra eru mismunandi. Heimamenn og ferðamenn nýta ferðamannarýmið á sama
hátt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BGB_Forsida_fixed.pdf | 6.67 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
BGB_Utdrattur_efnisyfirlit_fixed.pdf | 19.97 kB | Opinn | Yfirlýsing, útdráttur, efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
BGB_Meginmal_fixed.pdf | 198.25 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |