is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3286

Titill: 
  • Grafir týnast, gleymast nöfn. Rannsókn á staðsetningu kirkjuminja í Skagafirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Staðsetningar og einkenni kirkna og kirkjugarða er mikilvægt rannsóknarefni. Þekking á því hvernig minjar þeirra geta litið út í umhverfinu og hvar þeirra sé að leita er ekki síður mikilvægt tæki við fornleifaskráningar og minjavernd. Margt er á huldu varðandi upphaf kristni á Íslandi þar sem lítið er til af heimildum frá því tímabili og sá fjöldi fornleifarannsókna sem er til samanburðar takmarkaður. Engu að síður hafa ýmsar kenningar sprottið um umfjöllunarefnið, bæði byggðar á fornleifarannsóknum en yfirleitt eru þær
    byggðar á ritheimildum.
    Hér verður gerð tilraun til að kanna hvort hægt sé að þekkja útlit og líklegar
    staðsetningar fornra kirkna og kirkjugarða, með því að notast við á staðfræðilegar heimildir.
    Þær heimildir eru m.a. fornleifafræðileg gögn (fornleifaskráningar og uppgreftir unnar af fagmönnum), lýsingar staðkunnugra (ábúenda og þeirra sem hafa látið sig málið varða) og svo loks loftmyndir. Einnig verða helstu atriði sem snúa að kirkjusögu skoðuð til að öðlast dýpri skilning á umfjöllunarefninu. Hvernig kirkjur og kirkjugarðar voru hér á landi í upphafi
    kristni og hvernig þróuðust þær? Hvernig hún náði að festa rætur og verða eins voldug eins og hún síðar varð? Hverjir reistu kirkjurnar og hvernig voru þær byggðar? Hver hafði umsjón með þeim og sá um rekstur þeirra? Með því að fara yfir þessi atriði, bæði með aðstoð ritheimilda og niðurstöður fornleifarannsókna, er vonandi hægt að öðlast betri skilning á hvernig finna megi leifar kirkna og kirkjugarða.

Samþykkt: 
  • 30.1.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3286


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Berglind_Thorsteinsdottir_fixed.pdf11.44 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Tolfraedi_fixed.pdf42.14 kBOpinnTölfræðitaflaPDFSkoða/Opna
Skagafjordur_fixed.pdf217.11 kBOpinnMynd af SkagafirðiPDFSkoða/Opna