is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3290

Titill: 
  • Fjölskyldumiðuð umönnun á barnadeildum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fjölskyldumiðuð umönnun (FMU) er skilgreind sem sú umönnun sem fjölskyldan fær þegar
    einn eða fleiri einstaklingar fjölskyldunnar veikjast.
    Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að fjalla um viðhorf, hlutverk og verklag
    hjúkrunarfræðinga til FMU á barnasviði sem og ávinning framhaldsmenntunar á þessu sviði.
    Tilgangurinn var einnig að skoða helstu rannsóknir sem gerðar hafa verið á reynslu, þátttöku
    og þörfum foreldra tengdum sjúkrahúsdvöl barna. Notast var við gangasöfn á internetinu við
    öflun heimilda við gerð yfirlitsins.
    Hlutverk hjúkrunarfræðinga við FMU eru margvísleg. Meðal annars að leggja upp
    fyrir foreldrum hvaða hlutverkum þeir eigi að sinna á sjúkrahúsinu, vernda fjölskylduna frá
    álagi, veita hjúkrunarmeðferðir og fræða. Reynsla hjúkrunarfræðinga af aukinni menntun í
    FMU er almennt góð. Hún skilar meiri ánægju í starfi og viðhorf þeirra til FMU varð
    jákvæðara.
    Foreldrum finnst þörfum sínum oftast fullnægt meðan á sjúkrahúsdvöl stendur. Þær
    þarfir sem foreldrar telja mikilvægar snerta upplýsingar um barnið og meðferð þess og að
    barnið fái bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem kostur er á. Af niðurstöðum má greina að
    FMU gæti bætt þjónustu við foreldra á sjúkrahúsum.
    Hjúkrunarfræðingar eru í daglegum samskiptum við fjölskyldur á meðan þær dvelja á
    sjúkrahúsi og því er mikilvægt fyrir þá að huga að því hvernig þeir geta veitt sem
    árangursríkasta FMU.

Samþykkt: 
  • 25.1.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3290


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Helga_Gunnarsdottir_fixed.pdf272.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna