is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3311

Titill: 
  • Ferðir Íslendinga á Hróarskelduhátíðina. Hvati og upplifun ferðar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tónlistarhátíðin í Hróarskeldu í Danmörku er meðal elstu og fjölmennustu
    tónlistarhátíða í Norður-Evrópu. Ritgerðin fjallar um Íslendinga sem hafa sótt
    Hróarskeldu á síðastliðnum árum, upplifun þeirra af hátíðinni og hvaða hvatar lágu á
    baki för þeirra á hana.
    Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvað heillar Íslendinga við
    Hróarskelduhátíðina og af hverju fólk sækjir þessa hátíð mörgum sinnum. Í
    fræðilegri nálgun er umfjöllun um hvata að ferðalögum, með áherslu á ferðir á
    sérstaka viðburði, hvata að sókn viðburðar, viðburðaferðamennsku og
    tónlistarferðamennsku.
    Tekin voru sjö eigindleg viðtöl við einstaklinga sem hafa farið á
    Hróarskelduhátíðina oftar en einu sinni. Meginþemun sem svörin voru greind eftir
    voru: Hvati að för á Hróarskelduhátíðina; undirbúningur fyrir hátíðina; afþreying og
    upplifun á hátíðum; munur á milli rigingarhátíða og sólarhátíða.
    Niðurstöður benda til þess að stemmningin og skipulagið á hátíðinni skipti
    ekki síður máli en tónlistin til að skýra aðdráttarafl hátíðarinnar.

Samþykkt: 
  • 4.2.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3311


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hildur_Elisabet_Thorgrimsdottir_fixed.pdf908.33 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna