Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3339
Þessi rannsókn fjallar um aðgerðir gegn einelti hjá tíu skipulagsheildum innan
fjármálafyrirtækja á Íslandi. Skoðað var hvort skipulagsheildirnar væru með stefnu gegn
einelti og hvort notast væri við sérstaka verkferla ef upp kæmu eineltismál. Rannsakað
var til hvaða lausna skipulagsheildirnar geta gripið til við úrvinnslu eineltismála og hvað
þátttakendum þykir besta forvörnin gegn einelti á vinnustöðum.
Af þeim tíu skipulagsheildum er tóku þátt í rannsókninni eru þrjár með skilgreinda
eineltisstefnu. Fjórar þeirra eru með ákvæði um einelti í starfsmannastefnu sinni eða
innan jafnréttisstefnu. Þrjár skipulagsheildir eru ekki með neina stefnu gegn einelti í einu
eða öðru formi, en tvær þeirra eru með stefnu í vinnslu. Fimm skipulagsheildir eru með
tilbúina aðgerðaáætlun eða verkferla sem hægt er að grípa til ef einelti kemur upp. Tvær
skipulagsheildir eru með slíkt ferli í vinnslu.
Þau atriði sem vert er að hafa í huga til þess að koma í veg fyrir einelti innan
skipulagsheilda er að halda úti stefnu gegn einelti. Góð samskipti, skýrar boðleiðir og
góður starfsandi innan skipulagsheilda eru meðal annars þættir sem taldir eru geta
spornað gegn einelti. Stjórnendur eiga stóran þátt í því að fylgja þessum atriðum eftir.
Þeir þurfa að sýna gott fordæmi og vera meðvitaðir um eigin hegðun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Helga_Bryndis_Kristjansdottir_fixed.pdf | 781.31 kB | Lokaður | Heildartexti |