is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/334

Titill: 
  • Tölvur í eðlisvísindum : verklegar æfingar með tölvutengdum mælitækjum fyrir nemendur á unglingastigi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.ED.- prófs við kennaradeild Háskólans á
    Akureyri, vormisserið 2005. Tilgangurinn er að gera námsefni um eðlisvísindi fyrir efstu
    bekki grunnskóla. Er hér fyrst og fremst um gerð verklegra æfinga með tölvutengdum mæli-
    tækjum að ræða sem henta vel sem ítarefni með kennslubókum á unglingastigi.
    Eitt helsta markmið menntunar er að búa nemendur undir lífið í samfélaginu. Í margbreyti-
    leika nútímans reynir á hæfileikann til að bregðast við nýjum aðstæðum, takast á við og tileinka
    sér nýjungar og framfarir á öllum sviðum. Nám í eðlisvísindum stuðlar að því að nemendur
    geri sér grein fyrir því hversu mikilvæg þróun í vísindum er, bæði í nútíð og framtíð. Almenna
    notkun tölvunnar má finna allstaðar í nútíma samfélagi og í raun má segja að hún sé allstaðar.
    Skólinn á að endurspegla samfélagið og því ætti tölvan að vera sjálfsagður hlutur í skólastarfi.
    Flestir eru sammála um notagildi tölvunnar og að hægt sé að nýta hana sem hjálpartæki í
    námi.
    Verklegu æfingarnar tengjast allar forritinu „Data Studio“ sem er hugbúnaður til notkunar
    við mælingar, söfnun og úrvinnslu gagna. Það er öflug viðbót við ríkjandi kennsluaðferðir. Í
    verkefninu eru kennara- og nemendaleiðbeiningar fyrir verklegu æfingarnar, ásamt ítarupp-
    lýsingum um þau hugtök sem koma fyrir í verklegu æfingunum. Það er von mín að þessar
    verklegu æfingar komi að gagni við kennslu í eðlisvísindum.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/334


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
tolvuriedli.pdf7.26 MBOpinnTölvur í eðlisvísindum - heildPDFSkoða/Opna