is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3390

Titill: 
  • Móðr of miklar heiðar. Fjallskil Miðfirðinga frá byrjun sautjándu aldar til nútímans, með áherslu á tuttugustu öld
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er um fjallskil Miðfirðinga. Staðháttum í Miðfirði og Vestur-Húnavatnssýslu er lýst og sérstaklega fjallað um heiðalönd Miðfirðinga, Húksheiði, Núpsheiði og Aðalbólsheiði. Gert er lauslega grein fyrir þróun fjallskila á Íslandi frá upphafi byggðar til loka tuttugustu aldar, en með áherslu á Vestur-Húnavatnssýslu og Miðfjörð. Farið er yfir skipulag fjallskila á tuttugustu öld ásamt helstu atriðum í tengslum við framkvæmd þeirra. Lýst er útbúnaði gangnamanna, aðstæðum á heiðunum og dregin upp mynd af ýmsum venjum tengdum gangnaferðum Miðfirðinga. Að lokum er komið inn á samskipti Miðfirðinga og Borgfirðinga í tengslum við fjallskil, lýst réttarstörfum á Réttarvatnstanga og fjallað aðeins um girðingar á milli héraða.
    Um leið og fjallskil Miðfirðinga eru útskýrð sem slík er lýst ýmsum þáttum sem snertu framkvæmd þeirra. Einnig er reynt að draga fram hvort og þá hvaða breytingar urðu á þeim á tuttugustu öld, því á sama tíma urðu miklar breytingar á búskaparháttum íslensku þjóðarinnar.
    Við vinnslu ritgerðarinnar var stuðst bæði við skriflegar heimildir sem og munnlegar. Viðtöl voru tekin við sex Miðfirðinga sem hafa mikla reynslu af gangnaferðum og eru þau aðgengileg í Miðstöð munnlegrar sögu sem hefur aðsetur í Landsbókasafni Íslands-Háskólabókasafni. Með því að nota bæði fjallskilareglugerðir og persónulegar heimildir fólks sem fór í göngur, náðist heildstæðari mynd af fjallskilum Miðfirðinga.

Samþykkt: 
  • 11.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3390


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Elinbjorg_Helgadottir_fixed.pdf919.82 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna