is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/339

Titill: 
  • Ég veit - ég virði : greinagerð um námspil í trúarbragðafræði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Greinargerð þessi fylgir námspili í trúarbragðafræði sem við unnum út frá námsefni sem kennt er á miðstigi. Spilinu er ætlað að nýtast samhliða kennslu á námsefninu með það að markmiði að dýpka skilning nemenda og bjóða upp á nýja og spennandi nálgun á efninu.
    Í greinargerðinni er fjallað um trúarbrögð, uppruna þeirra og áhrif á samfélagið. Fjallað er um trúarbragðakennslu í grunnskólum, og námsefni í trúarbragðafræði fyrir miðstig er kynnt og skoðað. Efnið er svo tengt umfjölluninni um námspil, sem fylgir í kjölfarið. Sá þáttur hefst á almennri umfjöllun um gildi námspila í skólastarfi, skoðaðar eru ýmsar uppeldiskenningar sem gott er að hafa í huga þegar ráðist er í gerð námspila, og loks er útskýrt hvernig þær kenningar eru nýttar í spilinu. Greinargerðinni fylgir svo umfjöllun um spilið sjálft, markmið þess og vinnuferlið, uppbyggingu og innihald auk leikreglna og spilagagna.

Samþykkt: 
  • 13.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/339


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Spilaborð.pdf265.16 kBOpinnSpilaborðPDFSkoða/Opna
Ég veit - Ég virði. Námspil í trúarbragðafræði..pdf595.36 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna