is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3409

Titill: 
  • Þættir sem hafa áhrif á lengd stjórnarmyndunarviðræðna: belgísku kosningarnar 2007
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um þá þætti sem hafa áhrif á lengd stjórnarmyndunarviðræðna, og þá sérstaklega hvaða þættir voru fyrir hendi í stjórnarmyndunarviðræðunum sem áttu sér stað í Belgíu eftir kosningarnar þar í landi árið 2007. Ég byrja á því að fara yfir helstu kenningar sem fram hafa komið um efnið. Síðan fer ég yfir sögu tungumálaspennunnar sem hefur verið í Belgíu frá því að hún var sjálfstætt ríki. Ástæðan er að þrátt fyrir þá þætti sem raktir eru í kenningunum sem ég nefndi áðan, tel ég að megin ástæðan fyrir því að stjórnarmyndunarviðræðurnar taka svona langan tíma í landinu, eigi rætur sínar í sögu þess og spennunni sem ríkir milli tungumálasamfélaganna þar. Ég kemst að þeirri niðurstöðu að Belgía uppfylli nánast alla þá þætti sem nefndir eru í kenningunum, en þar að auki er ljóst að spennan milli Flæmingja og frönskumælandi Belga er gríðarleg og hún setur sitt mark á þessar viðræður. Ég tel að ein helsta leiðin til þess að stytta stjórnarmyndunarviðræður í Belgíu sé að leysa vandamálin sem eru milli þessara tveggja samfélaga. Annars munu stjórnarmyndunarviðræðurnar ávallt taka langan tíma þar í landi.

Samþykkt: 
  • 11.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3409


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Thorir_Baldvin_Hrafnsson_fixed.pdf269.37 kBLokaðurMeginmálPDF
Thorir_Baldvin_Hrafnsson_forsida_fixed.pdf10.59 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
Thorir_Baldvin_Hrafnsson_Heimildir_fixed.pdf117.06 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
Thorir_Baldvin_Hrafnsson_utdrattur_fixed.pdf5.67 kBOpinnÚtdrátturPDFSkoða/Opna