is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3417

Titill: 
  • Opinber stýring öldrunarþjónustu. Er þörf á nýrri nálgun?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar ritgerðar er opinber stýring öldrunarþjónustu á Íslandi og
    hvort þörf er endurmats og nýrrar nálgunar. Öldrunarþjónustan er í höndum
    margra aðila: ríkis, sveitarfélaga, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja. Um er að
    ræða þjónustunet sem þróast hefur smám saman á áratugum. Þjónustan er ýmist
    flokkuð sem heilbrigðisþjónusta eða félagsþjónusta og fellur sem slík undir tvö
    ráðuneyti. Ábyrgð á framkvæmd lögbundinnar þjónustu er að hluta hjá ríki og að
    hluta hjá sveitarfélögum.
    Í ljósi umboðskenninga og fræðilegrar þekkingar á opinberum netum og
    stjórnun þeirra eru skoðaðar þær aðferðir sem ríkisvaldið beitir við stýringu,
    skipulag og samhæfingu öldrunarþjónustunnar frá stefnumörkun til framkvæmdar
    og hvort þær aðferðir hafa skilað tilætluðum árangri. Jafnframt er kannað hvort
    vænta megi betri árangurs í öldrunarþjónustu með breyttum áherslum í
    samhæfingu og stýringu þjónustuúrræða.
    Tvær meginleiðir voru farnar við gagnaöflun. Annarsvegar voru skoðuð
    ýmis fyrirliggjandi gögn sem endurspegla stefnu, áætlanagerð og eftirfylgd hins
    opinbera svo sem lög, reglugerðir, samningar, stefnuplögg og úttektir. Hinsvegar
    voru tekin viðtöl við 11 einstaklinga sem hafa með mismunandi hætti komið að
    stjórnun öldrunarþjónustu á Íslandi.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að þörf sé endurskoðunar á
    skipulagi og framkvæmd þjónustunnar. Við þá endurskoðun væri gagnlegt að
    horfa til umboðskenninga og þekkingar á opinberum netum. Þörf er á að skýra
    hlutverka-, ábyrgðar- og verkaskiptingu og setja viðmið um gæði þjónustunnar og
    rétt notenda. Stefnumörkun þarf að fylgja vandaðri útfærsla og eftirfylgd en
    hingað til og bæta þarf eftirlit með þjónustunni. Hvort sem öldrunarþjónustan
    verður á ábyrgð ríkis eða sveitarfélaga væri gagnlegt að horfa á hana sem flókið
    opinbert net þar sem skipulag þarf að vera skýrt og samráð víðtækt.

Samþykkt: 
  • 11.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3417


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristin_Soley_Sigursveinsd_fixed.pdf480.71 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna