is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3427

Titill: 
  • Áhrif kynbóta á afkomu íslenskra kúabúa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í rannsókn þessari verða áhrif kynbóta á afkomu íslenskra kúabúa skoðuð. Gögnin sem notuð eru í rannsókninni eru tvíþætt. Annars vegar eru notuð gögn úr rekstrarreikningi íslenskra kúabúa frá 1997 til 2003, sem fengin eru frá Hagþjónustu landbúnaðarins. Hins vegar eru það gögn úr skýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands en þar er að finna upplýsingar um kynbótamat gripa á bæjunum. Aðferðin sem beitt er byggist á mati kostnaðarfalls með slembijaðargreiningu. Aðferð þessi gerir, ólíkt hefðbundnum aðferðum í framleiðslufræðum, ekki ráð fyrir því að framleiðendur séu fullkomlega hagkvæmir. Því fæst nákvæmara mat á stika líkansins þar sem ljóst er að sú forsenda að allir framleiðendur séu hagkvæmir er ekki raunhæf. Vegna misdreifni í gögnunum er einnig stuðst við handahófsúrtaksnálgun til að sannprófa niðurstöðurnar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að kostnaður lækkar um 1,68% þegar kynbótamat hækkar um 1%. Einnig fást þær niðurstöður að hagkvæmni búanna eykst með tímanum. Athyglisvert er að nánast sömu niðurstöður fást þegar kostnaðarfallið er metið með slembijaðargreiningunni einni og sér og þegar það er metið með slembijaðargreiningu með handahófsúrtaksnálgun.

Samþykkt: 
  • 10.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3427


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristin_Ros_Johannesdottir_fixed.pdf763.62 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna