is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3435

Titill: 
  • Ten little Lithuanians and 'other' stories. 'Othering' the foreign national in the Icelandic mainstream discourse
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á hvers vegna og hvernig útlendingar
    hafa verið mótaðir (e. constructed) sem ógnandi staðalmyndir í ráðandi orðræðu á
    Íslandi. Færð eru rök fyrir því að til þess að skilja þessa mótun sé nauðsynlegt að
    fjalla um hana í víðu fræðilegu samhengi og einnig í tengslum við tiltekna
    orðræðugreiningu. Í fræðilegu umfjölluninni er sýnt fram á vankanta á kenningum
    tengdum eðlishyggju og bent á að sjálfsmynd (e. identity) er ekki eðlislæg, heldur
    óstöðug og mótuð í orðræðu. Jafnframt eru sett fram rök sem sýna að til þess að
    móta „eðlilega“ sjálfsmynd sé nauðsynlegt að móta „óeðlilega“ staðalmynd er
    byggist á vissri „óeðlilegri“ hegðun. Þessi röksemdafærsla er skoðuð í samhengi
    við sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar (e. Icelandic national identity) og sýnt er
    fram á að hin erlenda staðalmynd mótar og viðheldur „eðlilegu“ íslensku
    sjálfsmyndinni. Í framhaldi er framkvæmd orðræðugreining á umfjöllun um
    útlendinga í íslenskum prentmiðlum árið 2007 og sýnt hvernig umrædd mótun á
    sér stað. Í greiningunni kemur fram að mótaðar hafa verið staðalmyndir tengdar
    skipulagðri glæpastarfsemi, nauðgunum og slagsmálum, og tengjast þær allar
    karlmönnum frá Austur-Evrópu. Ólíkt „eðlilegu“ Íslendingunum virðast þessir
    menn nauðga á hrottafenginn hátt (stundum hlæjandi), slást líkt og vopnaðir
    villimenn og stela miklu magni af vörum úr búðum. Fræðilega umfjöllunin og
    orðræðugreiningin eru því næst nýttar til þess að færa fyrir því rök að ráðandi
    orðræða á Íslandi móti sjálfsmynd sem er of einföld fyrir heiminn eins og hann er
    dag, vegna þess að sjálfsmyndin byggist á úreltri tvíhyggju. Jafnframt er sýnt fram
    á að hún útiloki vissa einstaklinga frá „eðlileika“ sökum gallaðs „ákvarðanatökuferlis“.

Samþykkt: 
  • 12.9.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3435


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Jon_Gunnar_Olafsson_fixed.pdf756.75 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna