is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3436

Titill: 
  • Groundfish species diversity and assemblage structure in Icelandic waters during a period of rapid warming (1996-2007)
Titill: 
  • Fjölbreytileiki og samfélagsgerð botnfiska á Íslandsmiðum á árunum 1996-2007
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Hlýnandi loftslag undanfarinna ára hefur valdið breytingum á útbreiðslu
    fiskitegunda á norðurhveli jarðar. Ólík svörun tegunda við hækkandi hita getur leitt
    til breytinga á samfélagsgerð og staðbundnum tegundafjölda. Í kjölfar breytinga á
    sjávarhita hafa verið skráðar breytingar á stofnstærð og útbreiðslu nokkurra
    fiskitegunda á Íslandsmiðum. Markmið þessarar rannsóknar voru að kanna
    breytingar á útbreiðslu, fjölbreytileika og samfélagsgerð botnfiska á Íslandsmiðum á
    hlýnunarskeiði og hvaða umhverfisþættir ráða þeim.
    Í rannsókninni voru notuð gögn Hafrannsóknastofnunarinnar úr árlegum (1996-
    2007) stofnmælingum botnfiska að hausti (október). Í stofnmælingunni eru sömu
    stöðvar endurteknar ár hvert. Klasagreining (hierarchical cluster analysis) var notuð
    til að skilgreina samfélög fiska á tveimur tímabilum og fjölþáttagreiningin CCA
    (canonical correspondence analysis) til að kanna tengsl milli samfélaga og hitastigs,
    dýpis, breiddar- og lengdargráðu og ára. Einnig voru notaðir tveir
    fjölbreytileikastuðlar; fjöldi tegunda og Shannon index. Tengsl fjölbreytileika og
    hitastigs, dýpis, frumframleiðslu, staðsetningar og ára voru könnuð með GAM
    líkönum (generalized additive models).
    Fjögur meginsamfélög með útbreiðslu í suðvestur-djúpi, norður-djúpi, suður
    landgrunni og með víða útbreiðslu á landgrunni voru greind með klasagreiningu.
    Samfélög í köldum sjó djúpt norður af landinu voru óbreytt á rannsóknartímanum, en
    samfélagsgerð tegunda í breytilegri hlýsjó yfir landgrunninu sýndu meiri breytingar á
    sama tímabili. Fjölþáttagreining sýndi líka fram á aukið vægi hlýsjávartegunda á
    þessu hlýnunarskeiði. Í ljós kom að fjölbreytileiki var mismunandi eftir árum og
    staðsetningu, auk þess sem hann breyttist með dýpi og hitastigi. Tegundafjöldi jókst
    með hitastigi og tíma suður og vestur af landinu, en minnkaði fyrir norðan og austan
    land. Á sumum svæðum þar sem fjöldi tegunda var mikill var Shannon index lágur.
    Þetta gefur til kynna að þrátt fyrir að margar tegundir séu á þessum svæðum, þá er
    einstaklingsfjöldi flestra þeirra lítill.

Samþykkt: 
  • 12.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3436


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lilja_Stefansdottir_fixed.pdf4.61 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna