is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3442

Titill: 
  • Áhrif Evrópusambandsins á stefnumótun íslenska raforkumarkaðarins
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknarinnar er að greina hversu mikil áhrif raforkumarkaðsstefna
    Evrópusambandsins hefur á íslenska raforkumarkaðsstefnu fyrir
    tilstilli EES-samningsins. Var það gert með því að greina gerðir ESB annars vegar
    og íslenskt regluverk hins vegar og það borið saman. Samanburður var annars
    vegar gerður á raforkulögum nr. 65/2003 og tilskipun 2003/54/EB um innri
    raforkumarkað Evrópusambandsins. Hins vegar á lögum um upprunaábyrgð á
    raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl. nr. 30/2008 og
    tilskipun 2001/77/EB um endurnýjanlega orkugjafa til rafmagnsframleiðslu.
    Niðurstaða rannsóknarinnar er að Evrópusambandið hefur mikil áhrif á íslenskan
    raforkumarkað og markar í raun stóru línurnar um skipulag hans. Á sama tíma eru
    innanlandsáhrifin þó nokkur, einkum er varðar útfærslu þeirra þátta sem
    tilskipunin markar og að auki eru viðbætur í lögunum sem tilskipunin tekur ekki á.
    Hvað varðar afmarkaðan hluta raforkumarkaðarins, þ.e. nýtingu endurnýjanlegra
    orkugjafa til rafmagnsframleiðslu, þá eru áhrif Evrópusambandsins á íslenska
    stefnumótun lítil nema á afar þröngu sviði upprunaábyrgða. Heildarniðurstaðan er
    að stefnusamleitni hafi því átt sér stað milli Evrópusambandsins og Íslands á sviði
    raforkumarkaðsmála þar sem samhljómur milli stefnanna er mikill og þær innleiða
    sambærilegt markaðsfyrirkomulag. Þannig innleiðir íslenska stefnan í meginatriðum
    skipulag Evrópusambandsins í raforkumarkaðsmálum en hún einkennist jafnframt af sterkum íslenskum sérkennum.

Samþykkt: 
  • 2.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3442


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Olafia_Dogg_Asgeirsdottir_fixed.pdf602.75 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna