is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3452

Titill: 
  • Tillaga um nýja íslenska táknmálsorðabók á málvísindalegum forsendum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar og aðalviðfangsefni hennar er fyrst og fremst að
    leggja fram tillögu að gerð nýrrar íslenskrar táknmálsorðabókar en ekki síst að gefa
    góða heildarlýsingu á hljóðkerfisfræðilegum og morfólógískum1 ferlum í táknmálum
    almennt. Ritgerðin fjallar einna helst um fræðilegar forsendur fyrir gerð nýrrar
    íslenskrar táknmálsorðabókar sem byggir á íslensku táknmáli auk hagnýtra forsenda
    fyrir gerð hennar. Ekki verður leitast við að útlista hvernig hin fullkomna og
    endanlega táknmálsorðabók á að vera, enda ekki víst að hún verði nokkurn tíma að
    veruleika. Hér verður reynt að leggja fram raunhæfar tillögur sem standast þær
    fræðilegu kröfur sem gera má til bóka af þessu tagi. Það er heldur ekki ætlunin að
    veita nákvæm svör við þeim spurningum sem varpað er fram í textanum, því oftast er
    ekki hægt að gefa eitt einhlítt svar. Rannsóknin er margþætt. Þau
    rannsóknarviðfangsefni sem eru í brennidepli í ritgerðinni eru m.a.: hugsanlegir
    notendur íslenskrar táknmálsorðabókar, hlutverk orðabókarinnar og hvernig hún muni
    tengjast t.d. stöðlun íslensks táknmáls. Rannsóknin beinist einnig að því hvernig
    efnisöflun fer fram, með tilliti til þess að íslenskt táknmál hefur ekki ritkerfi og tákn
    eru ekki sérstaklega búin til í íslenska táknmálsorðabók, og hvað ákvarðar val á táknum í hana. Reynt verður að finna æskilega tilhögun á innbyrðis röðun flettiorða
    og aðgangi að þeim. Auk þess verður komið inn á það hvers konar upplýsingar eru
    gefnar upp um uppflettiorðið í flettugreininni. Einnig verður heildarútlit
    orðabókarinnar skoðað, þ.e. hvað annað en flettuskrá er æskilegt að hafa í
    orðabókinni.Ýmis vandamál sem tengjast framsetningu orðasafnseininga íslensks
    táknmáls í nýja íslenska táknmálsorðabók og hugsanlegar úrlausnir þeirra verða
    einnig athugaðar. Fyrirhugað er að táknmálsorðabókin verði á rafrænu formi og
    verður kastljósinu því varpað að kostum og göllum þess útgáfuforms.

Athugasemdir: 
  • Dæmi sem fylgja köflum 2, 3 og 4 eru ekki aðgengileg í Skemmunni. Þau má skoða í Landsbókasafni.
Samþykkt: 
  • 14.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3452


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Nedelina_Ivanova_fixed.pdf1.37 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna