is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3463

Titill: 
  • Unglingar og vímuefnaneysla : rannsóknir og forvarnir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Unglingar og vímuefnaneysla eru málefni sem brenna á mörgum í þjóðfélaginu og með tilliti til þeirra miklu breytinga og hraða sem orðið hafa síðustu árin í samfélagi okkar er ávallt brýn þörf fyrir opna umræðu. Unglingar og ungmenni eru hópar sem alltaf verða til staðar og ávallt þarf að endurskoða og bæta þær áherslur eða aðferðir sem við vinnum með ef betur skal í vímuefna og forvarnarmálum á Íslandi.
    Í þessari ritgerð verður farið ofan í margt sem snýr að unglingum og vímuefnanotkun. Rakið verður helstu rannsóknir síðustu ára sem varða vímuefnaneyslu unglinga og ungmenna í framhaldsskóla. Dregið verður saman sú þróun sem hefur verið í þessum ákveðnu málum á Íslandi og hvernig áhrifaþættir í lífi unglinga tengjast vímuefnaneyslu þeirra. Farið verður í ýmsar kenningar innan félagsfræðinnar til að varpa ólíkum tilgátum fram sem geta útskýrt vímuefnaneyslu unglinga, þegar skoðað er umhverfi þeirra og aðstæður.
    Einnig verða forvarnarmál skoðuð með það í huga hvað sé hægt að gera betur og hvað sé að virka. Heimildaöflun var í formi lesturs bóka, fræðigreina og rannsóknarskýrsla til að skoða þróunina og bera saman síðustu ár.

Samþykkt: 
  • 18.8.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3463


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kápa.pdf68.52 kBOpinnKápaPDFSkoða/Opna
Titilsíða.pdf40.51 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna
Heimildir.pdf69.86 kBOpinnHeimildirPDFSkoða/Opna
Lokaverkefni.pdf302.34 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna