is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3464

Titill: 
  • Ég ætla að verða hel-massaður : áhrif útlitsdýrkunar á unga karlmenn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið með þessari rannsókn var að skoða áhrif samfélagsins á líkamsímynd ungra karlmanna. Það var gert með eigindlegri rannsóknaraðferð og var rannsóknin framkvæmd á tímabilinu janúar – apríl 2009. Tekin voru opin viðtöl þar sem stuðst var við spurningalista. Við val á þátttakendum var notað markvisst úrtak. Viðmælendur rannsóknarinnar voru sjö og voru þeir valdir vegna starfsstöðu og hugsanlegrar fagþekkingar á útllitsdýrkun og röskunum á líkamsímynd ungra karlmanna. Tilgátan sem lagt var upp með var að líkamsímynd ungra karlmanna sé verri en samfélagið telur og útlitsdýrkun sé því vaxandi vandamál. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að líkamsímynd ungra karlmanna fer sífellt versnandi og fjölmiðlar spila þar stórt hlutverk sem áhrifavaldar og fyrirmyndir. Hluti vandamálsins er að ekki er nægilega mikil þekking á málefninu né fræðsla til fagaðila sem vinna með ungum karlmönnum.
    Lykilorð: Útlitsdýrkun.

Athugasemdir: 
  • Fræðslumyndband fylgir prentuðu eintaki
Samþykkt: 
  • 18.8.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3464


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ég ætla að verða hel-massaður.pdf206.55 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna