is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3493

Titill: 
  • Hvað einkennir þá sem ná árangri í hugrænni atferlismeðferð? Ósérhæfð hópmeðferð fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða tengsl einstaklingsþátta við
    meðferðarárangur í ósérhæfðri hugrænni atferlismeðferð meðal gesta
    heilsugæslustöðva. Þátttakendur voru 441 talsins en þeim var vísað í meðferðina af
    heimilislækni. Meðferðin var veitt í 15-25 manna hópum af tveimur sálfræðingum
    Landspítalans og stóð í fimm vikur. Hver tími var vikulega, tvo tíma í senn.
    Niðurstöður sýna að meðferðin ber árangur fyrir breiðan hóp fólks. Alvarlegri
    einkenni í upphafi meðferðar voru yfirleitt tengd betri árangri í meðferð ásamt því
    að fjöldi greininga og persónuleikaröskun sýndu ekki tengsl við meðferðarárangur.
    Þessar niðurstöður eru í andstöðu við fyrri rannsóknir. Rannsóknin sýndi einnig að
    tengsl lýðfræðilegra breyta við meðferðarárangur voru ekki til staðar en fyrri
    rannsóknir hafa verið misvísandi í þessum efnum. Frekari rannsókna er því þörf til
    að skýra betur tengsl einstaklingsþátta við árangur í ósérhæfðri hugrænni
    atferlismeðferð meðal gesta heilsugæslustöðva.

Samþykkt: 
  • 2.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3493


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Adalbjorg_Heidur_fixed.pdf333.33 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna