is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/349

Titill: 
  • Lagaumhverfi starfsmannaleiga á Íslandi og í Evrópu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Starfsmannaleiga er fyrirtæki sem sérhæfir sig í því að leigja öðrum fyrirtækjum starfsfólk. Viðkomandi starfsmaður þiggur þá laun sín frá starfsmannaleigunni en starfar undir stjórn notendafyrirtækisins. Þetta ráðningarform hefur notið sífellt meiri vinsælda í Evrópu á síðustu 10-15 árum. Á Íslandi hefur það einnig verið mikið í umfjölluninni á síðustu árum vegna stórframkvæmda á Austurlandi þar sem leigustarfsmenn hafa mikið verið notaðir. Að margra mati er þetta óæskileg þróun þar sem margt bendir til þess að leigustarfsmenn séu líklegri til að vera beittir órétti en aðrir hefðbundnir starfsmenn. Til að bregðast við þessu hafa lög verið sett í flestum Evrópuríkjum með það markmið að vernda hagsmuni leigustarfsmanna og koma í veg fyrir svokölluð félagsleg undirboð. Einnig hafa verið hreyfingar í þá átt í alþjóðastofnunum eins og Evrópusambandinu og Alþjóðavinnumálastofnuninni. Í þessari ritgerð er varpað ljósi á starfsemi starfsmannaleiga í Evrópu og hinar ýmsu leiðir sem farnar hafa verið í lagasetningu eru skoðaðar og bornar saman. Auk þess eru íslenskir dómar sem tengjast starfsmannaleigum skoðaðir.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/349


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
starfsm.leiga.pdf478.75 kBTakmarkaðurLagaumhverfi starfsmannaleiga á Íslandi og í Evrópu - heildPDF
starfsm.leiga_e.pdf86.43 kBOpinnLagaumhverfi starfsmannaleiga á Íslandi og í Evrópu - efnisyfirlit PDFSkoða/Opna
starfsm.leiga_h.pdf113.04 kBOpinnLagaumhverfi starfsmannaleiga á Íslandi og í Evrópu - heimildaskráPDFSkoða/Opna
starfsm.leiga_u.pdf79.95 kBOpinnLagaumhverfi starfsmannaleiga á Íslandi og í Evrópu - útdrátturPDFSkoða/Opna