Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3509
Í ritgerð þessari verður fjallað um hættubrot í íslenskum umferðarrefsirétti með hliðsjón af hgl. Leitast verður einkum við að skoða hvenær brot, sem drýgð eru við stjórnun vélknúinna ökutækja, eru heimfærð til ákvæða hgl. í stað, og/eða samhliða, umfl. Enn fremur verður tæpt á framkvæmd úr dönskum rétti. Óhjákvæmilegt er annað en að fjalla nokkuð um hættubrot með almennri umfjöllun, sem og umferðarrefsirétt, stöðu umferðarlöggjafar og fyrirkomulag það sem tíðkast við afgreiðslu mála vegna brota sem framin eru við stjórnun vélknúinna ökutækja og þykja varða við ákvæði umfl. Enn fremur verður reynt að draga ályktanir af fyrirliggjandi framkvæmd og brjóta til mergjar aðferðarfræði dómstóla við úrlausnir mála af þessum toga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Birgir_Jonasson_efnisyfirlit_fixed.pdf | 17.33 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Birgir_Jonasson_forsida_fixed.pdf | 50.43 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Birgir_Jonasson_fixed.pdf | 216.5 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Birgir_Jonasson_heimildarskra_fixed.pdf | 45.24 kB | Opinn | Heimildaskrá, dómaskrá | Skoða/Opna |