is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/357

Titill: 
  • Starfsskilyrði blaðamanna með tilliti til 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í lýðræðissamfélagi eru blaðamenn upplýsendur almennings og þar með varðhundar hans. Tjáningarfrelsi þeirra er stutt sameiginlegum rétti almennings til upplýsinga skv. 10. gr. Evrópusamnings um mannréttind og mannfrelsis. Mannréttindadómstóll Evrópu mun veita blaðamönnum sérstaka vernd þegar höfð eru afskipti af tjáningarfrelsi þeirra.
    Við fréttaöflun verður blaðamaður ekki krafinn sagna um heimildarmenn sína nema brýnni nauðsyn en hagsmunir almennings af því að fá upplýsingarnar krefjist þess. Meginreglan um vernd heimildarmanna nær nú einnig yfir leit í vinnugögnum blaðamanna, þó vísbendingar séu um að þau njóti einnig sjálfstæðrar verndar tjáningarfrelsisins. Blaðamaður mun ekki baka sér refsiábyrgð við notkun gagna sem honum berast og varða hagsmuni almennings, enda þótt hann viti að þau séu illa fengin. Enn ríkir óvissa um refsiábyrgð þar sem blaðamenn taka sjálfir þátt í ólöglegu athæfi við gagnaöflun, en varði upplýsingarnar brýna hagsmuni almennings er ólíklegt að þeim verði hegnt svo brjóti ekki gegn 10. gr. Sáttmálans.
    Við fréttaflutning verndar 10. gr. bæði efni hans og form. Á það jafnt við um efni sem tekið er við í þökk eða óþökk viðtakandans, og upp að vissu marki ýkjur og ögrun svo framarlega sem fréttirnar eru sannar og sagðar í góðri trú. Dómstóllinn greinir á milli staðreynda og gildisdóma, þar sem verða færðar sönnur á hið fyrrnefnda. Gildisdómar eru ekki refsiverðir að því gefnu að þeir styðjist við staðreyndir. Stjórnmálamenn og opinberar persónur þurfa að þola hvassari gangrýni en aðrir, en opinberir starfsmenn og embættismenn sem eiga erfiðara með andsvör munu njóta meiri verndar. Fréttaflutningur af einkalífi fólks er þá einungis heimill að upplýsingarnar varði hagsmuni almennings.
    Það mun ráða úrslitum, þegar fjallað er um afskipti af tjáningu blaðamanna, hvort þær upplýsingar sem miðlað er varði hagsmuni almennings. Myndar það kenninguna um hagsmuni almennings. Á grunni hennar er rangt að greina á milli fréttaöflunar og fréttaflutnings.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/357


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
starfsskily.pdf370.59 kBTakmarkaðurStarfsskilyrði blaðamanna með tilliti til 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu - heildPDF
starfsskily_e.pdf86.33 kBOpinnStarfsskilyrði blaðamanna með tilliti til 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
starfsskily_h.pdf121.46 kBOpinnStarfsskilyrði blaðamanna með tilliti til 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu - heimildaskráPDFSkoða/Opna
starfsskily_u.pdf90.01 kBOpinnStarfsskilyrði blaðamanna með tilliti til 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu - útdrátturPDFSkoða/Opna