is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3590

Titill: 
  • Atvinnustefna á Íslandi 1900 - 2009
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um atvinnustefnu á Íslandi. Hér verður leitast eftir því að svara tveimur spurningum.
    Hvernig hefur atvinnustefna þróast á Íslandi?
    Hver er atvinnustefna stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnarinnar árið 2009?
    Hvað varðar þróun atvinnustefnu á Íslandi þá hefur atvinnustefnan tekið miklum breytingum frá árunum 1900 til 2009. Atvinnulíf á Íslandi einkenndist lengi af miklum ríkisumsvifum og regluveldi. Árið 1991 var mynduð ný ríkisstjórn sem boðaði breytingar á atvinnustefnu Íslands. Umhverfi atvinnulífs þróaðist úr því að vera reglumótað og þvingandi yfir í frjálsræði. Ríkið dró úr umsvifum sínum í atvinnulífinu og fyrirtæki og stofnanir í eigu ríkisins voru einkavædd. Atvinnustefna stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnarinnar árið 2009 er skoðuð til hlítar. Það sem einkennir atvinnustefnu þessara aðila er áhersla á nýsköpun og að draga úr atvinnuleysi. Helstu deiluefni flokkanna eru fjögur og snúast um fiskveiðistjórnunarkerfið, Evrópusambandið, aðkomu ríkisins að atvinnustarfsemi og að lokum stóriðju og umhverfissjónarmið.

Samþykkt: 
  • 21.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3590


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Atvinnustefna_fixed.pdf1.09 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna