Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3605
Í ritgerðinni er fjallað um gildi tómstunda fyrir fólk með þroskahömlun. Fjallað er um ávinning þess að fatlaðir séu virkir í tómstundum út frá heilsu og andlegri líðan. Ýmsar kenningar tengdar tómstundum eru skoðaðar og hvernig tómstundir fela í sér nám. Lýst er hvernig tómstundir geta dregið úr félagslegri einangrun og stuðlað að vinamyndun. Í ritgerðinni er bæði fjallað fræðilega um efnið út frá heimildum, og einnig reynt að fá fram sjónarmið þeirra sem eru að starfa í tómstundum með fólki með þroskahömlun. Það er gert með því að taka eigindleg viðtöl við fjóra starfandi þroskaþjálfa á mismunandi vettvangi og fá fram þeirra upplifun og sjónarmið á tómstundum. Í lokin gefur að líta niðurstöður þar sem fræðilega efnið er mátað við eigindlegu viðtölin og túlkun höfundar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B_A__Ritg 28 04 09 Lokið pdf Net Skriða.pdf | 544.21 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |