is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3606

Titill: 
  • Þjónusta til ungra barna með einhverfu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis er að segja frá þeirri þjónustu sem ungum börnum með einhverfu og skildar þroskaraskanir stendur til boða á Íslandi. Við vinnslu ritgerðarinnar voru kannaðar heimildir um einhverfurófið og skoðaðar upplýsingar um ýmsar stofnanir og hagsmunasamtök sem koma að þjónustu til barna með einhverfu. Einnig var aflað upplýsinga um þá hugmyndarfræði sem ríkjandi er og tvær helstu aðferðirnar sem farnar eru í þjálfun barna með einhverfu hér á landi. Markmið ritgerðarinnar er að greina, á lýsandi hátt, frá efni og aðstæðum sem eru til staðar hér á landi, svo foreldrar og aðrir aðstandendur geti nýtt sér það til glöggvunar. Ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á þær þjónustustofnanir og þau félög sem annast málefni barna með röskun á einhverfurófinu hér á landi, lýsa í grófum dráttum einkennum ýmissa einhverfurófsraskana og segja frá tveim helstu leiðum sem farnar eru í þjálfun barna með röskun á einhverfurófinu.

Samþykkt: 
  • 22.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3606


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
355l 2009.pdf363.45 kBOpinnHeildartexti PDFSkoða/Opna