is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3616

Titill: 
  • Samanburður á skilningi ungs manns með einhverfu á tali og tákn með tali
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Seinkun í málþroska barna með þroskahamlanir og einhverfu er mikið áhyggjuefni. Áætlað er að eingöngu helmingur barna með einhverfu læri tal sem samskiptaaðferð. Í þessari rannsókn var leitast við að gera samanburð á skilningi ungs manns með einhverfu á tali og tákn með tali. Rannsóknarsniðið var einstaklingstilraunasnið og aðferðin var snið ólíkra inngripa. Í fyrri tilrauninni var þátttakandi beðinn um að benda á eina mynd af þremur mögulegum. Í seinni tilrauninni var þátttakandi beðinn um að benda á hluti í íbúð sinni. Í báðum tilraunum voru fyrirmælin gefin annað hvort með tali eða tákn með tali. Helstu niðurstöður úr fyrri tilrauninni voru þær að ekki kom fram skýr munur á skilningi þátttakanda á tali eða tákn með tali. Ekki var hægt að ljúka seinni tilraun vegna vandkvæða þátttakanda við aðgreiningu milli áreita. Því var ekki hægt að draga fram niðurstöður úr seinni tilrauninni.
    Lykilorð: Tal.

Samþykkt: 
  • 22.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3616


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samanburður á skilningi ungs manns með einhverfu á tali og tákn með tali.pdf359.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna