Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3629
Þessi ritgerð er niðurstaða lokaverkefnis míns í menningar- og menntastjórnun við Háskólann á Bifröst. Ég rannsakaði sex menningarstofnanir og tvö stórfyrirtæki með tilliti til áhrifa stefnu stórfyrirtækja í styrkveitingum til menningarmála á menningarstofnanir á tímabilinu 2002 til 2008. Greinileg hugmyndafræðileg tengsl eru á milli aðkomu einkafjármagns að menningarstarfsemi í Bretlandi og Bandaríkjunum og þeirrar stefnu sem tekin var upp á Íslandi.
Það kom mér á óvart hversu ígrunduð markaðsstefna stórfyrirtækjanna er varðandi menningarstarfsemi og á hversu árangursríkan hátt þeim hefur tekist að nýta hana sér til framdráttar í nafni svokallaðrar samfélagslegrar ábyrgðar. Þá vakti það undrun mína hvað sértekjur menningarstofnana vegna samstarfs þeirra við stórfyrirtæki eru í raun litlar miðað við umfjöllun um samstarfið í fjölmiðlum og það almannatengslastarf sem þær vinna fyrir stórfyrirtækin.
Loks vekur það athygli að notkun stórfyrirtækja á virðingu og trausti rótgróinna menningarstofnana í opinberri eigu til félagsmótunar og ímyndaruppbyggingar tíðkast nánast gagnrýnislaust hérlendis. Vonast ég til að rannsókn þessi eigi eftir að eiga hlut í að gera sambönd menningarstofnana og stórfyrirtækja gagnsærri og vera innlegg í umræðu um hvernig þeim verður best fyrir komið í framtíðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
loftur_lokautgafa_fixed.pdf | 1.53 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |