Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3653
Í þessu lokaverkefni sömdu höfundar sögur út frá þjóðsögunum um Bakkabræður. Sögurnar höfum við fært til nútímans og fjalla þær um þríburabræður í Vesturbænum. Þeim fylgja kennsluleiðbeiningar sem eru unnar í anda fjölgreindakenningar Howards Gardners. Verkefnin eru hugsuð fyrir nemendur í þriðja og fjórða bekk grunnskóla. Greinargerðin fjallar um fjölgreindakenninguna, hvers vegna við teljum mikilvægt að innleiða hana í skólum og hvernig hún tengist kennsluverkefni okkar. Fjallað er um af hverju þjóðsögur og sögur henti vel til kennslu og hvert uppeldis- og kennslufræðilegt gildi þeirra er. Í kennsluverkefninu eru verkefni sem fylgja hverri sögu fyrir sig. Þar er komið inn á átta mismunandi greindir nemenda samkvæmt kenningu Gardners og námsgreinar samþættar. Meðal annars er lögð áhersla á samvinnu, skapandi og sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 204.48 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Kennsluverkefni.pdf | 247.81 kB | Opinn | Kennsluverkefni | Skoða/Opna | |
Sögurnar um Palla, Kalla og Halla.pdf | 5.67 MB | Opinn | Sögurnar um Palla, Kalla og Halla | Skoða/Opna |