Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3654
Hvert liggur leiðin? : leit sjónskertrar stúlku að framhaldsskóla
Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að kanna hvað liggur að baki ákvörðunar ungrar
sjónskertrar stúlku við val á framhaldsskóla. Niðurstöður byggja á eigindlegri
rannsókn sem var unnin á tímabilinu ágúst 2008 til mars 2009. Þátttakendur í
rannsókninni voru fimmtán ára gömul sjónskert stúlka og móðir hennar. Markmiðið
er að lýsa reynslu þeirra af þeim þáttum sem huga þurfti að við val á framhaldsskóla..
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að framhaldsskólarnir voru mistilbúnir til að taka
á móti sjónskertum nemanda og að við val á skóla þurfti að taka tillit til aðgengis og
félagslegra þátta.
Lykilorð: Jafnrétti til náms.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| ijn_fixed.pdf | 341KB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |